
Hið árlega kjólaball heimilistóna verður haldið i Iðnó laugardagskvöldið 21. ágúst n.k. sem er á Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Að venju verður mikið um dýrðir og glæsileikinn hafður í fyrirrúmi.
Hljómsveitin
Heimilistónar er skipuð þjóðþekktum og hæfileikaríkum, en umfram
allt gríðarlega skemmtilegum einstaklingum, allt konum. þær sérhæfa
sig í erlendum lögum frá seinni hluta 20. aldarinnar, gullaldarára
rokksins á 5. og 6 áratugs þeirra aldar. Heimilistónar leggja á það
megináherslu að þýða texta laganna eins nákvæmlega og hægt er. Glæsilega
framkoma þeirra í ofanálag gerir dansleiki þeirra algerlega einstaka.
Hljómsveitina skipa
- ólafía Hrönn Jónsdóttir
- Katla Margrét þorgeirsdóttir
- Elva ósk ólafsdóttir
- Vigdís Gunnarsdóttir
- Ragnhildur Gísladóttir
þegar grannt er skoðað sést að allar eru stúlkurnar hagvanar á sviði og þá aðallega leiklistarsviðinu. þeim er þó greinilega fleira til lista lagt og er miil tilhlökkun í hópnum að spila í Iðnó.
Listmálarinn Eiríkur Smith (f.1925) á að baki langan og farsælan feril.
á síðari árum er hann einkum þekktur fyrir málverk þar sem maðurinn er gjarnan í forgrunni en landið og manna verk mynda mangþungna umgjörð. En ferill Eiríks er langur og hefur tekið miklum breytingum bæði í takt við tíðarandan en einnig vegna þess að listamðurinn hefur gert upp við sig að vilji hverfa frá ákveðinni myndgerð og kanna nýjar slóðir.